top of page

Skyldur félagsmanna

Að baki félagsaðild eru mjög ákveðnar skyldur um traust, trúverðugleika og ríkulegt siðferði gagnvart neytendum og geta neytendur sem eiga viðskipti við félagsmenn ávallt leitað aðstoðar FF komi upp vandamál. Á hinn bóginn er ekki vilji til að innan FF séu aðilar sem brotið hafa alvarlega gegn neytendum.

Í stærstu viðskiptum á lífsleiðinni er nauðsynlegt að neytendur geti treyst fasteignasalanum sem það fær ráðgjöf frá í einu og öllu. Þetta er grundvallaratriði og skiptir öllu gagnvart félagsmönnum FF. Félagsmenn FF fylgja í störfum sínum ströngum skyldum laga og eru að auki m.a. bundnir ströngum siðareglum auk góðra venja sem FF hefur úrskurðað að félagsmönnum beri að fylgja til að tryggja hagsmuni neytenda. Þá er félagsmönnum boðið upp á umfangsmikla og metnaðarfulla sí/ endurmenntun til þess að tryggja faglega þekkingu félagsmanna.

Andri Sigurðsson er Löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala.

 

bottom of page